|
Þjónusta vegna Garmin tækja
Sölustaðir
Íslandskort v.2009
Samsýn ehf. hefur um árabil útbúið íslenskt leiðsögukort. Kortið er hægt að nota í Windows Mobile tækum með innbyggðu GPS, öllum Garmin tækum og PC-tölvum. Kerfið er bylting fyrir alla ferðalanga því það veitir aðgang að nákvæmum kortum og upplýsingum sem áður voru óþekkt í sambærilegum kerfum.
Kortið er samsett úr gögnum í eigu Samsýnar, úr landupplýsingakerfi Reykjavíkur (LUKR) og úr gagnasetti Landmælinga Íslands. Við leitumst við að nota bestu upplýsingar sem í boðið er upp á á hverjum stað. Stöðugt er verið að bæta við upplýsingum, lagfæra vegakerfi, bæta inn og lagfæra örnefni.
Samsýn ehf. leggur mikla áherslu á gæði kortanna og að upplýsingar séu réttar. Því hefur fyrirtækið skuldbundið sig til að þróa kerfið áfram og uppfæra kort og staðsetningarupplýsingar reglulega. Undir tenglinum hér að ofan "Hafðu samband" geta notendur komið á framfæri athugasemdum um kortin, og kerfið almennt, og munum við vinna úr innsendum athugasemdum í þeim tilgangi að bæta þjónustuna.
Höfuðborgarsvæðið: Á svæðinu frá og með Kjalarnesi og vestur um Straumsvík eru mjög nákvæm götukort sem unnin eru úr gagnasöfnum Samsýn ehf. og LUKR. Á kortinu eru allar götur og því sem næst öll heimilisföng sem finnast á svæðinu og eru ný hverfi þar með talin. Á kortinu munu einnig verða merktir sérstaklega áhugaverðir staðir og þjónustur s.s. hótel, bensínstöðvar, veitingastaðir, golfvellir, verslanir, sundstaðir, bankar, sjúkrastofnanir, o.fl.
Landsbyggðin: Á kortunum er að finna alla vegi í dreifbýli ásamt 20 metra hæðarlínum, ám, vötnum, jöklum, fjallaslóðum og u.þ.b. 40.000 örnefnum. Fljótlega mun einnig bætast við vegir innan allra þéttbýlisstaða ásamt heimilisföngum.
Um örnefni: Staðsetning örnefna á GPS kortunum (alls um 40.000 örnefni) miðast við staðsetningu texta á prentuðum kortum Landmælinga Íslands í mælikvarða 1:50.000. Staðsetningin í GPS kortunum endurspeglar því í mörgum tilfellum ekki raunverulega staðsetningu örnefnanna. Þessi háttur var hafður á vegna þess að örnefnin á hnituðu formi voru einungis aðgengileg með annmörkunum. Það var talið að það væri það mikið upplýsingagildi í gögnunum að æskilegt væri að hafa þau með.
Söfnun gönguleiða: Í nýjustu útgáfu Íslandskort v.2009 eru nokkrar gönguleiðir. Þessar gönguleiðir eru bæði myndmældar af loftmyndum eða skráðar með GPS handtæki. Þær gönguleiðir sem eru myndmældar er stuðst við leiðarlýsingar frá Ferðafélagi Íslands, Útivist eða samkvæmt öðrum heimildum
Áframhaldandi þróun: Markmið Samsýnar ehf. er að halda stöðu sinni sem leiðandi aðili á sviði landupplýsinga- og staðsetningarkerfa. Því verður stöðugt unnið að uppfærslu og viðhaldi kortanna þannig að þau geti nýst öllum ferðalöngum í starfi og leik.
Það er okkur ekki síst mikilvægt að vita sem best hug viðskiptavina okkar svo við getum aðlagað vöru okkar sem best að honum. Því viljum við hvetja sem flesta til að senda okkur ábendingar vegna kortanna.
Sendið á samsyn(hjá)samsyn.is
|